Dagný Ósk
Skemmtilegar síður
Mótorhjól
Myndirnar mínar
Klukkan
25.04.2009 08:34:41 / dagnyosk

Gleðilegt sumar !!

Gleðilegt sumar allir !! Það var mjög gott veður framan af hér í Grundó á sumardaginn fyrsta, en það fór svo að SNJÓA um kvöldið. Þá var bara kúrt sér inni með kertaljós og kökur. Bauð sem sagt heim í saumó.

En það hefur ekki alveg staðist eitt blogg í mánuði...sorry.

Núna er Jósep Dagur að verða 6 mánaða ! Tíminn er svo sannalega fljótur að líða. Hann er farinn að snúa sér með smá stuðning og syngur allan daginn ef hann heyrir lag í útvarpinu eða ef mamma og pabbi syngja fyrir hann. Hann er farinn að fá graut og finnst það mjög gott, heimtar bara meira og meira hehe.

Við Maggi höfum það fínt, hann er alltaf að vinna og ég þarf kannski að fara að vinna í júlí, en það á eftir að koma betur í ljós. Við skelltum okkur norður um páskana, það var mjög gaman. Fórum í fermingaveislu á Húsavík og gistum svo í Klapparhúsi sem er sumarbústaður fjölskyldunnar lengst inni í Bárðardal-kósý. Við vorum vitaskuld veðurteppt á subarunum okkar og þurfti bóndinn á næsta bæ að koma og riðja fyrir okkur..hehe.

Svo eru fréttir, Signý systir er bara að koma til landsins núna 7.maí og verður kannski í heilt ár !! Hlakka svo til að fá hana. Hún ætlar að koma vestur og vera hjá okkur í viku.

Núna er kostningadagur og ég er enn að ákveða mig hvað ég ætla að kjósa. Eitt er samt víst, ég ætla ekki að skila auðu ! Gangi ykkur  nú öllum vel að kjósa

Dada


» 22 hafa sagt sína skoðun

14.02.2009 22:57:29 / dagnyosk

Litla fjölskyldan

Jæja, er ekki lágmark eitt blogg í mánuði??

Af okkur er allt gott að frétta, þrátt fyrir kreppuna og afleiðingar hennar. Jósep Dagur var skírður 18.janúar í Grundarfjarðarkirkju og heitir hann í höfuðið á föðurafa sínum, honum Jobba. Skírnarvottar voru Anna María systir mín og Guðrún Jóna (Rúna) systir hans Magga. Hann var eins og ljós í kirkjunni og grét ekki neitt. Anna tengdó hélt svo rosalega flotta veislu á Kaffi 59 og Hrund gerði mjög flotta skírnartertu.

Hann er orðinn 3 1/2 mánaða !! Tíminn er svo fljótur að líða. Í 3 mánaða skoðun var hann orðin 7,4kg og alla vega 64cm. Hann er farinn að taka vel eftir öllu í kringum sig, brosa, hlæja og skríkja. Það er að komast regla á svefninn hjá honum svo þetta er allt að verða auðveldara þó svo að hann sofi ekki alltaf alla nóttina...

Við erum búin að vera mikið í bænum svo ef ykkur langar að hitta okkur þá endilega prófið að slá á þráðinn...aldei að vita nema maður sé fyrir sunnan og til í smá hitting :haha:

Annars er lítið að frétta, Signý systir er enn úti á Nýja-Sjálandi, hún er búin að fá vinnu þar svo hún er ekkert á leiðinni heim. Hún er ekki einu sinni búin að sjá Jósep Dag !! En vonandi kemur hún í heimsókn fljótlega.

Skrifa meira síðar, da da



» 23 hafa sagt sína skoðun

05.01.2009 20:30:05 / dagnyosk

Jólin og áramótin

Gleðileg jól og farsælt komandi ár ! Þá eru jólin að verða búin. Ég er ekki sú duglegasta að blogga þessa dagana !! Það er mikil vinna að eiga barn hvað þá börn! Litli drengurinn minn hefur nú fengið nafnið Jósep Dagur og tekur mikinn tíma frá mömmu sinni. Þetta er skemmtilegasta vinna sem ég hef unnið þó svo að það sé lítið vaktarfrí hehe. Stefnt er á að skíra drenginn helgina 17-18. janúar 2009.

Við vorum í Hafnarfirðinum um jólin en heima um áramótin. Jósep Dagur svaf af sér allar sprengjurnar á gamlárskvöld og vaknaði bara þegar allt var búið því hann var orðinn svangur, mikið matargat þessi piltur enda stækkar hann rosalega vel.

Maggi er farinn að vinna aftur og við erum því ein heima að dúlla okkur, ég fer líklega að vinna aftur í ág/sep ca.

Ég fór á reunion hjá Víðó milli jóla og nýjárs, það var mjög gaman. Ég gat reyndar bara stoppað í 1 1/2 tima og svo aftur í 1 klst því Jósep var ekki sáttur við að vera mömmulaus of lengi hehe. Þarna hitti ég fólk sem ég hafði ekki séð í 10 ár !! En aðra hef ég hitt af og til síðan við útskrifuðumst. Skrítið, sumir svo líkir sér en aðrir mjög breyttir, td. var einn strákur alltaf kallaður "litli" en er bara ekkert lítill lengur ! Margar stelpurnar orðnar mömmur, komnar með 1-3 börn og giftar á meðan aðrir voru enn single og að leika sér.

En ég þarf víst að fara að sinna stráknum, vona að einhver lesi bloggið mitt, þó svo ég sé löt að blogga.

Jólakveðja frá Grundó,

Dagný Ósk

» 22 hafa sagt sína skoðun

22.11.2008 17:29:36 / dagnyosk

Fæddur prins !

Fimmtudaginn 30. október kl. 22.40 fæddist loks litli prinsinn okkar. Hann var 3630g eða 14 og hálf mörk og 50,5cm langur. Fæðingin gekk ágætlega og heilsast móður og barni vel.

Við erum enn að átta okkur á drengnum, þörfum hans og þess háttar en það er bara gaman. Það er lítill tími sem er laus til að hanga í tölvu eða setja inn nýjar myndir á barnalandið svo fólk verður bara að vera þolinmótt.

Ég varð svo fyrir því að tölvan mín bilaði eitthvað og gat því ekki sett inn myndir á barnalandssíðuna (sjá link til vinstri) í marga daga en það fer vonandi að lagast.

Prinsinn er alveg æðislegur, vær og góður.

skrifa meira seinna, kv. Dagný og prinsinn

» 26 hafa sagt sína skoðun

28.10.2008 20:25:23 / dagnyosk

Meðgöngueitrun og gangsetning

Jæja, þá er farið að líða að því að litli kútur láti sjá sig. Komin 38 vikur á morgun og stefnt er að því að setja mig af stað annað kvöld. Ástæðan er sú að ég greindist með meðgöngueitrun fyrir rúmri viku síðan og það eina sem lagar hana er að koma barninu í heiminn. Ég er búin að fara í vaxtarsónar og þá var áætlað að prinsinn væri orðinn 13 og hálf mörk !!! svo þetta verður allt í góðu.

En ég er sem sagt búin að liggja inni á spítala meira eða minna síðan mánudaginn 21.október og það er lífsreynsla útaf fyrir sig. Aldrei þurft að "vera hinu megin við borðið" á sjúkrahúsi en það venst.

Jæja, kveð ykkur að sinni, veit ekki hvernær ég á eftir að hafa tíma til að blogga næst svo ég segi bara hafið það  gott  ;)

Kveðja Dagný og bumbus.


» 34 hafa sagt sína skoðun

07.10.2008 09:51:17 / dagnyosk

Klukk-pukk

   

Tommi klukkaði mig.

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

1. Hrafnista í Hafnarfirði
2. A-7 Fossvogi (LSH)
3. Bráðamóttaka barna, Hringbraut
4. Heilsugæslustöð Grundarfjarðar

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

1. Smyrlahrauni 29, Hafnarfirði
2. Víðivangi 16, Hafnarfirði
3. Fincley, London baby
4. Grundargötu 17, Grundarfirði

Fjórar bíómyndir sem ég held uppá:

1. Leon
2. Grease
3. James Bond myndirnar
4. Seven

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

1. Gilmore girls
2. Grey´s Anatomy
3. Simpson
4. House

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

1. Mallorca
2. Goa, Indlandi
3. Tæland
4. Þýskaland

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
1. ja.is
2. facebook.com
3. barnalandssíður
4. mbl.is

Fernt sem ég held uppá matarkyns:

1. Pizzu á Kaffi 59
2. Londonlamb
3. Indverskur
4. Grillaður Humar

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:

1. (Les ekki bækur oft)
2. Bókin um barnið
3. Skólabækur
4. Barnabækur

Fjórir bloggarar sem ég klukka:

Halla frænka
Erla Anna
Guðrún Valdís
og Rósa

Þangað til næst….


» 25 hafa sagt sína skoðun

16.08.2008 12:17:37 / dagnyosk

Ágústmánuður

Af mér er allt gott að frétta, heilsan fín og ég er hress. Var að búa til barnalandssíðu fyrir krílið okkar Magga: www.barnaland.is/barn/77905 . Síðan er læst svo þið verðið bara að hafa samband til að fá lykilorðið.

Um verslunarmannahelgina fórum við í sumarbústað í Húsafelli með Ragga og Rut og krökkunum hennar Rutar. Það var mjög fín aflöppun þó sólin hafi nú ekki látið sjá sig nema einn dag. Takk fyrir mig !

Næstu helgi koma svo skvísurnar úr Club 7 til mín í heimsókn, fæstar hafa komið hingað áður svo ég vona að við fáum gott veður. Hlakka til að fá ykkur !

Hef þetta ekki lengra í bili, hafið það gott,

kv. Dagný Ósk og 27 vikna bumbukríli.

» 22 hafa sagt sína skoðun

07.07.2008 09:24:23 / dagnyosk

Sumar og sól

Kannski kominn tími á blogg. Meðgangan gengur vel. Ég er bara hress, er að vinna 100% á heilsugæslustöð og það er nóg að gera. Kem til með að byrja að vinna í mínum heimabæ í lok júlí og hlakka mikið til að þurfa ekki að keyra í og úr vinnu, KOSTAR svo MIKIÐ !! Hvernig er þetta eiginlega með bensínverðið ?? Á þetta ekkert að lækka??

Ég er nú búin að vera mikið í bænum undanfarið þar sem Signý systir er búin að vera á landinu, kom svona óvænt en hún er að fara út aftur á morgun :(

Fór svo í brúðkaup síðustu helgi, Ósk og Skarpi, vinir mínir voru að gifta sig. Til lukku með það sætu hjón !!

Næstu helgi koma gellurnar úr Afródítusaumónum í heimsókn vestur, hlakka mikið til, það verður grillað og sprellað eitthvað.

Svo styttist í ættarmót Togganna ;) Þrusu stuð á því liði alltaf hreint! En í lok júlí er svo "Á góðri stund" bæjarhátíð Grundarfjarðar og þá ætlar fjölskyldan mín, foreldrar, systkini og co. að fjölmenna og mála bæinn GULAN !! Ég tek ekki mikið frí í sumar þar sem ég kem til með að vera heima í allan vetur með krílið ;-) En ég tek þó eina viku í júlí sem er enn óplönuð.

Hef þetta ekki lengra í bili, hafið það gott í sumar ;-)

» 26 hafa sagt sína skoðun

28.05.2008 14:54:03 / dagnyosk

Baby baby !

Já, ég er sem sagt ólétt ! Komin um 16 vikur á leið. Þetta er ekkert nema yndislegt og frábært og við erum voða ánægð með þetta allt saman. Það hefur gengið mjög vel hingað til, smá ógleði og vesen fyrst en allt búið núna. Fórum í hnakkarþykktarmælingu í lok apríl sem kom vel út, sem sagt litlar líkur á litningagöllum. Núna er krílið að stækka og stækka og það fer bráðum að sjást á mér, svona alvöru. En hvort þetta er stúlka eða drengur mun koma í ljós í fæðingunni, held við ætlum ekkert að fá að vita kynið í næsta sónar. Svo þið megið alveg láta ykkur dreyma...verður það bleik eða blátt ??? 



Ég á sem sagt að eiga í byrjun nóvember :)
Langaði bara að deila þessu með ykkur.

Kv. Dagný og 16 vikna bumbukríli

» 27 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 15:13:47 / dagnyosk

Maímánuður

Ég vil byrja á því að óska besta bróður í heima til hamingju með daginn í dag. Hann á afmæli hann Jón Trausti...hann á afmæli í dag veiii. Tíminn er fljótur að líða og áður en við vitum af verður komið sumar !! (veit að sumardagurinn fyrsti er kominn en...þið vitið).

Annars er allt fínt að frétta af mér. Er loksins komin í EINA vinnu á EINUM stað BARA 100%. En ég var sem sagt í miklu meiri prósentu á þremur vinnustöðum svo þetta er góð tilbreyting. Þetta þýðir líka að nú á ég frí allar helgar :þ víí.

Ætla líklega að fara næstu helgi í sveitina til ömmu minnar, hef ekki farið í rúmt ár held ég ! Helgina eftir það er ég að fara í sumarbústað með gellunum í Afródítusaumónum, hlakka rosalega til :lol: Svo helgarnar verða vel nýttar í sumar.

Vil nýta tækifærið og óska Fridu vinkonu til hamingju með afmælið 10. maí og Systu þann 14. maí. Hafið það gott sætu skvísur !

Blogga meira síðar, over and out

» 26 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 10:19:59 / dagnyosk

Apríl

Mánuðurinn byrjaði með aprílgabbi, ég var plötuð til að líta til hliðar því það væri SELUR inni í skólastofunni...ég alvega haa !!! :s Þá kom, ALLT Í PLATI, FYRSTI APRÍL !! Stúlka í 1. bekk svo saklaus og sæt...ohhhhggg. Ég hljóp alla vega ekki !

Annars er ekki mikið að frétta, bara vinna og aftur vinna. Kem í bæinn næstu helgi og hlakka mjög mikið til. Það er nefninlega svaka plan í gangi ;-) Fyrst að hitta ma og pa sem ég hef ekki hitt frekar lengi, svo hitta Önnu Maríu systur og co. sem ég hef ekki séð í  2 mánuði  (og við búum báðar á Íslandi !!).

Laugardagskvöldið verður svo djammkvöld, Jón Trausti bróðir ætlar að bjóða okkur frændsystkinunum heim í mat og alles. Höfum haft það fyrir reglu að hittast og skemmta okkur saman yfir gömlum og nýjum minningum ! Reyndar komið mjög langt síðan við hittumst síðast, nokkur ár held ég bara. Þá tókum við mynd af okkur saman (öll með sömu grettuna, vel í´þí) og gáfum ma og pa myndina hehe :haha: 

Á sunnudaginn verður svo saumó hjá Valdísi og þá hitti ég skvísurnar í Club 7, líka langt síðan ég sá þær !

Hafði það gott þarna úti... da da

» 19 hafa sagt sína skoðun

22.03.2008 12:18:59 / dagnyosk

Gleðilega páska !

Þá eru komnir páskar og páskafrí. Vonandi hafið þið það gott um páskana. Ég er að vinna á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi alla páskana og verð því bara fyrir vestan þessa páskahátíð.


Af mér er helst að frétta að ég keypti mér bíl síðustu helgi !! Ég er alveg rosalega ánægð með bílinn enda svaka kaggi :haha: Fyrir valinu varð Subaru Legacy Sedan með hita í sætum, tvöföldu pústi, skyggðum rúðum að aftan og krúscontroli ;-)

 Jæja, er að spá í að fara að páskaskreyta smá þó svo að ég eigi eiginlega ekkert páskaskraut ! En á nóg af gulu því ég er í gulahverfinu ;-)

Bið að heilsa ykkur öllum, nær og fjær og munið að tannbursta tennurnar eftir allt nammi átið !!


» 11 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 09:37:28 / dagnyosk

Ég tók á móti barni !!!

Já, ég tók á móti barni ásamt ljósmóðurinni hér í Ólafsvík miðvikudaginn 5. mars ! Þetta var mjög skemmtileg reynsla og gekk vel. Reyndar lá barninu mikið á í heiminn og því þurfti ég bókstaflega að grípa það ! Þetta var samt ekki í fyrsta skiptið sem ég tek á móti því ég var viðstödd fæðingu frænda míns í sumar og fékk að grípa aðeins inn í handtökin þar ;-) Það er aldrei að vita nema ég skelli mér í ljósmóðurnám ?? hver veit. Hafði það gott elskurnar ;-)









 

 

» 23 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 10:44:49 / dagnyosk

Ammæli Ammæli !!

Góðan daginn gott fólk !

Ég á víst afmæli í dag 03.03 og er víst ekki lengur 25 ára :-(

Af mér er allt gott að frétta, er að vinna á 3 stöðum í yfir 100% vinnu. Annars hef ég það mjög gott hérna úti á landi, allir góðir við mig og ég á fallegt heimili. Næsta skref er að fara að kaupa sér betri bíl til að geta mætt í vinnuna, búinn að vera slæmur vetur og mikill snjór hér fyrir vestan.

Í lok sumars byrja ég svo að vinna á Heilsugæslustöð Grundarfjarðar í stöðu hjúkrunarforstjóra ! Sú sem á stöðuna stefnir á að fara í námsleyfi í ár og því fæ ég tækifæri til að leysa hana af í ár, sem sagt frá hausti ´08 fram á haust ´09. 

Held þetta sé komið gott af bloggi og fréttum í bili, en eitt að lokum: Vill einhver miða á Sálatónleikana þann 14. mars ?? Veit um einn lausan miða... látið mig vita :haha: 

Over and out

» 31 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 09:41:49 / dagnyosk

Ný slóð !!!!

Komin með nýja slóð sökum uppfærslu á Blogcentral svæðinu. .....


Http://dagnyosk.blogcentral.is


Hlakka til að sjá ykkur þar :haha:

» 23 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Myndasöfn
Dagsetning
9. febrúar 2012